BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//mu.is - ECPv6.17.5.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:mu.is
X-ORIGINAL-URL:https://mu.is
X-WR-CALDESC:Events for mu.is
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260927T120000
DTEND;TZID=UTC:20260927T160000
DTSTAMP:20260917T104922Z
CREATED:20260917T104922Z
LAST-MODIFIED:20260917T104922Z
UID:8656-1790510400-1790524800@mu.is
SUMMARY:Hobby Horse\, yoga og ratleikur #BeActive
DESCRIPTION:Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu verður fjölbreytt dagskrá í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sunnudaginn 27. september. \nKl. 12 til 16. Boðið verður upp á Prikhestabraut (e. hobby horse track) þar sem gestum gefst kostur á að prófa þessa skemmtilegu íþrótt. Rætur Prikhesta má rekja aftur til Englands á 14. öld en snemma á þessari öld náði hún vinsældum á ný í Finnlandi og síðar víða um heim. Komdu með þinn eigin prikhest eða fáðu lánaðan hest í garðinum. \nKl. 13 Fjölskyldujóga. Notaleg og skemmtileg jógastund fyrir alla fjölskylduna. Mikilvægt að mæta tímanlega. \nKl. 14 til 16 Acro jóga smiðja. Prófaðu eitthvað nýtt! Leikur\, jafnvægi\, samvinna og hreyfing fyrir alla fjölskylduna. \nKl. 10 til 17 Ratleikur. Hvernig hreyfa dýrin sig – og af hverju? Dýr hreyfa sig á ótrúlega fjölbreyttan hátt. Sum hlaupa\, önnur hoppa\, skríða\, synda eða fljúga. Hreyfingin getur hjálpað þeim að finna fæðu\, forðast hættur\, verja svæði\, finna maka eða einfaldlega komast á milli staða. Í þessum ratleik kynnumst við hreyfingum dýranna á skemmtilegan og fræðandi hátt. Fylgdu vísbendingunum um garðinn\, skoðaðu dýrin og veltu fyrir þér hvernig líkami þeirra og hreyfingar hafa aðlagast ólíkum aðstæðum. Hreyfum okkur og uppgötvum hvernig dýrin hreyfa sig! \nÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur undanfarin ár hlotið styrk í gegnum Erasmus+ styrkjakerfi Evrópusambandsins (European Commission) vegna Íþróttaviku Evrópu. \nÍþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin ár hvert dagana 23. – 30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum\, óháð aldri\, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BEACTIVE
URL:https://mu.is/event/hobby-horse-yoga-og-ratleikur-beactive/
END:VEVENT
END:VCALENDAR