Fræðsludeild hefur verið starfandi innan garðsins frá upphafi. Í boði eru námskeið fyrir leik- og grunnskóla sem ýmist fara fram í leiðsagnarformi eða nemendur fá að upplifa á eigin skinni (hands on). Við viljum gjarnan að kennarar taki þátt í heimsókninni og séu starfsmönnum garðsins innan handar. Þá hvetjum við kennara til að undirbúa heimsóknina vel þannig að upplifunin af vettvangsferðinni nýtist þeim sem best í skólastarfinu.
Laugardalurinn er dýrmætt svæði í augum borgarbúa. Undanfarna áratugi hefur verið byggð upp margvísleg aðstaða þar fyrir fólk að verja tíma sínum til íþróttaiðkunnar, leikja, útivistar og fræðslu. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn setur svip sinn á dalinn og hefur notið síaukinna vinsælda.
Aðgangseyrir
Lýsing
Verð (ISK)
Aðgangur börn 0-5 ára
Frítt
Aðgangur börn 6-12 ára
1.050
Aðgangur 13 ára og eldri
1.500
Elli- og örorkulífeyrisþegar
Frítt
Árskort einstaklings
15.000
Árskortatilboð *
30.000
Plús á árskort **
15.000
10 skipta kort - Börn (6-12 ára) ***
8.400
10 skipta kort - Fullorðnir (13+ ára) ***
12.000
*Árskortatilboð inniheldur einstaklingskort fyrir tvo fullorðna og fjögur börn undir 18 ára, hægt er að bæta við fleiri einstaklingum gegn gjaldi.
** Með plús á árskorti getur þú boðið einum gesti með í garðinn við hverja komu, hægt er að kaupa fleiri en einn plús.
*** Skiptakort gilda ekki fyrir hópa.
Sjá skilmála ÍTR korta hér.
Dagsetning
Leiktæki sem þurfa mönnunar við eru lokuð, opna að nýju 1.júní.
Fallturn
Klessubílar
Bátar
Bílalest
Ökuskóli
Smábátar
Lest
Rugguskip
Hringekjan
Sleggjan
Strætisvagnar sem stöðva næst garðinum eru vagnar númer 2, 5, 15 and við gatnamót Vegmúla og Suðurlandsbrautar. Stöðin kallast Laugardalshöll.
Fjölskyldugarðurinn er í Laugadalnum og deilir bílastæði með Skautahöllinni. Bílastæðin þar eru ókeypis.
Það liggja reiðhjóla- og göngustígar að Laugardalnum úr öllum áttum. Hjólagrindur eru við innganginn.
Gestum er ekki heimilt að koma með gæludýr sín í garðinn (hundar þó leyfðir á ákveðnum dögum af og til) né ferðast um garðinn á hjólum, hjólaskautum, hjólabrettum, hlaupahjólum og öðrum slíkum fararskjótum.
Get News direct on email.