Komdu í heimsókn

Opið alla daga frá 10 til 17
Í Fjölskyldugarðinum kennir ýmissa grasa, þar komast gestir í nálægð við alls konar dýr, finna alls konar afþreyingu og notið þess að vera í fallegu og grónu umhverfi Laugardalsins. Opið alla daga allt árið. Frá kl. 10 til 17 (19.ágúst til 30.maí) og frá kl. 10 til 18 (31.maí til 18.ágúst)

GJALDSKRÁ

Aðgangseyrir, árskort og áskriftir

  • Lýsing Verð (ISK)
  • Aðgangur börn 0-5 ára Frítt
  • Aðgangur börn 6-17 ára 1.600
  • Aðgangur fullorðnir 2.800
  • Örorkulífeyrisþegar Frítt

    Örorkuþegar fá frítt gegn framvísun skírteinis frá TR

  • Dýranámskeið 2026 5 dagar 25.400
  • Dýranámskeið 2026 4 dagar 20.400
  • Árs- og skiptakort Verð (ISK)
  • Árskort börn 4.000
  • Árskort fullorðnir 7.000
  • Árskort 67 ára+ 4.000
  • Áskrift börn (á mánuði)* 333
  • Áskrift fullorðnir (á mánuði)* 583
  • Áskrift 67 ára+ (á mánuði)* 333
  • Aðgangskort plast eða rafrænt** 1.000

* 12 mánaða binditími.

**Aðgangskort eru ekki innifalin í verði árs- og áskriftarkorta en sömu kort (eða rafræn kort) eru notuð í sundlaugum Reykjavíkur, Ylströndinni og Borgarsögusafni. Vilji viðskiptavinur hafa árskort eða áskrift í einhverja ofangreindra staða á sama korti þarf einungis að greiða gjaldið fyrir kortið einu sinni. Aðganginn að hverjum stað þarf þó að greiða sérstaklega fyrir á þeim stöðum. Ef kort týnist eða glatast þarf viðskiptavinur að kaupa nýtt.

Sjá skilmála korta hér.

LEIKTÆKI

Valin mönnuð leiktæki verða opin um helgar í apríl og maí eftir því sem veður og mannafli leyfir. 

Mönnuð leiktæki eru lokuð virka daga til 1. júní. 

Leiksvæði Fjölskyldugarðsins er opið á opnunartíma garðsins alla daga. 

Ekki þarf að greiða sérstaklega fyrir leiktækin

Uppfært þann 21.4.2026.  Með fyrirvara um breytingar

DAGSKRÁ

Dýradagskrá – Fóðurgjafir og fróðleikur

10:30 – Hreindýr

11:00 – Selir

11:30 – Refir

14:00 – Umhverfisauðgun – staðsetning mismunandi

15:30 – Hreindýr

15:45 – Smádýr og fuglar 

16:00 – Selir

16:30 – Nautgripir og svín

Dýradagskrá fyrir veturinn 2025 / 2026 (Frá 1. september til 31.maí)  

Hvernig kemst ég í garðinn ?

Með strætó

Strætisvagnar sem stöðva næst garðinum eru vagnar númer 2, 5, og 15 við gatnamót Vegmúla og Suðurlandsbrautar. Stöðin kallast Laugardalshöll.

Með einkabíl.

Garðurinn deilir bílastæði með Skautahöllinni. Bílastæðin þar og víðar um Laugardalinn eru ókeypis.

Á reiðhjólinu eða gangandi

Það liggja reiðhjóla- og göngustígar að Laugardalnum úr öllum áttum. Hjólagrindur eru við innganginn.

Vinsamlega athugið

Gestum er ekki heimilt að koma með gæludýr sín í garðinn að undanskildum skráðum stilltum hundum á miðvikudögum. Gestum er ekki heimilt að ferðast um garðinn á hjólum, hjólaskautum, hjólabrettum, hlaupahjólum og öðrum slíkum fararskjótum.

Ekki bara húsdýr

Íbúar garðsins eru fleiri en margir halda. Að auki við algengustu húsdýrin finnur þú þar heimskautarefi, hreindýr og seli. Þá er þar nokkur fjöldi framandi dýra, þeirra á meðal skrið- og froskdýr.

Eitthvað fyrir öll, alla daga ársins

Leiktæki sem þurfa mönnunar við eru opin alla daga yfir sumarið og um helgar snemma á haustin og vorin. Önnur leiktæki eru opin allt árið. Opið er í dýrahúsunum alla daga allt árið. 

Veitingar

Veitingasala Bæjarins Beztu er opin alla daga. 

Nestisaðstaða er góð víða um garðinn og því einnig hægt að koma með nesti. 

Fræðsludagskrá

Í boði eru margvísleg námskeið fyrir leik- og grunnskóla, ýmist í formi leiðsagnar eða með öðrum upplifunum. Við hvetjum kennara til að taka þátt í verkefnum og undirbúa nemendur sína vel fyrir ferðina. Von okkar er að áfram verði unnið með þann fróðleik sem vinnst í garðinum eftir að í skólann er komið.

Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.