Ökuskólinn er eitt elsta leiktækið í garðinum og hefur verið starfandi síðan Fjölskyldugarðurinn opnaði, árið 1993. Sumarið 2021 var ökuskólinn gerður upp í samstarfi við Samgöngustofu. Hægt er að keyra um í Kátugötu, sem ungir vegfarendur ættu að kannast við. En Samgöngustofa sendir út upplýsingabækling um samgöngur fyrir krakka þar sem sögusviðið er Kátugata.