Hér má bóka skemmtilegar og fræðandi leiðsögn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og læra um dýrin sem þar búa!
Starfsfólk tekur á móti hópum og leiðir nemendur um garðinn, fræðslan er unnin frá aðalnámskrá og aðlöguð hverju skólastigi fyrir sig.
Opnað verður fyrir skráningar mánudaginn 31. ágúst kl. 12:00
Samningur milli Skóla- og frístundasviðs (SFS) Reykjavíkurborgar og Fjölskyldu – og húsdýragarðs veitir nemendum í leik- og grunnskólum borgarinnar ókeypis aðgang að garðinum á skólatíma.
Nemendur í skólum utan Reykjavíkurborgar greiða samkvæmt gjaldskrá sem finna má hér: https://mu.is/komdu-i-heimsokn/