Loading Events

« All Events

Hrekkjavaka í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum – draugar og skrímsli

október 24 @ 4:00 e.h. - 7:00 e.h.
Hrollvekjandi ævintýri, draugar og skrímsli fyrir alla fjölskylduna. Viðburðurinn hentar sérstaklega börnum 6-12 ára (og hugrökkum yngri börnum) í fylgd fullorðinna.
Dagskrá laugardaginn 24. október kl. 16:00-19:00
Drauga- og skrímslaganga – Dagrúnu Ósk Jónsdóttir, Pilkington Props og Hringleikur.

Hefst kl. 16:30 og 17:30 við innganginn. Þjóðfræðingurinn góðkunni Dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir leiðir gesti um garðinn með frásögnum af skrímslum og draugum úr íslenskum þjóðsögum. Persónur úr sögunum birtast gestum ljóslifandi – þú veist aldrei hvað er bak við næstu beygju.

Völundarhús í trjálundinum við hliðina á Ökuskólanum.

Hugrakkir ungir leikarar úr nærumhverfi garðsins taka á móti gestum og fara með þá í dularfullt og ævintýralegt ferðalag þar sem ýmislegt getur leynst í myrkrinu. 👻🕸️

Hleypt inn í hópum á 10 mínútna fresti frá kl. 16:30 til 18:30.
Grímusmiðja ÞYKJÓ fyrir skapandi skrímsli og drauga
Komdu ef þú þorir!! Hefðbundinn aðgangseyrir gildir.
Sjá heildardagskrá beggja dagana, 24. og 31. október á www.mu.is

Details

  • Date: október 24
  • Time:
    4:00 e.h. - 7:00 e.h.