Dýranámskeið sumarið 2024

22.mars 2024

Ég er að lesa

Dýranámskeið sumarið 2024

Námskeiðið stendur 10 til 12 ára krökkum (f. 2012 til 2014) til boða í sumar (2024). Á námskeiðinu vinna þátttakendur með dýr garðsins og námskeiðið því upplagt fyrir krakka sem áhuga hafa á dýrum. Þau taka þátt í verkum og umhirðu dýra í útihúsunum. Auk þess eru framandi dýr heimsótt og farið í leiki.

Hvern dag gefst krökkunum tækifæri á að kíkja inn fyrir girðinguna hjá einhverri dýrategund og komast þá í mikið návígi við dýrin og getur það verið mjög spennandi. Námskeiðið er fimm virkir dagar (4 dagar þar sem almennir frídagar eru) og hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 12.00. Eftir að námskeiði lýkur geta þátttakendur dvalið í garðinum þar til honum er lokað kl. 18:00 og leikið sér í leiktækjunum eða skoðað dýrin. Það komast 12 krakkar að í hverri viku.

Skráning fer eingöngu fram í gegnum vefinn sumar.fristund.is (athugið að upplýsingar þar hafa ekki verið uppfærðar fyrir árið í ár þegar þetta er ritað) en til að geta skráð þarf forráðafólk (þau sem skrá) að hafa rafræn skilríki og kennitölur þátttakenda og forráðafólks á hreinu.

Skráning hefst kl. 14:00 þriðjudaginn 23.apríl. Undanfarin ár hafa námskeiðin verið gríðar vinsæl og fyllst fljótt.

Námskeið           Tímabil

  1. námskeið: 10. til 14. júní
  2. námskeið: 18. til 21. júní (4 dagar)
  3. námskeið: 24. til 28. júní
  4. námskeið: 1. til 5. júlí

5.námskeið:       8. til 12. júlí

6.námskeið:       15. til 19. júlí 

7.námskeið:       22. til 26. júlí

8.námskeið:       29. júlí til 2.ágúst

9.námskeið:       6. til 9. ágúst (4 dagar)

10.námskeið:     12. til 16.ágúst

SKRÁNING

Þátttökugjald er 24.200 krónur og veittur er 20% systkinaafsláttur. Þátttökugjald fyrir 4 daga námskeið er 19.380 krónur.

Innifalið í þátttökugjaldi er skemmtileg og lifandi fræðsla þar sem dýr garðsins koma mikið við sögu og dvöl í garðinum allan daginn alla vikuna.

 

 

 

 

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.