Dýranámskeið fyrir 10 til 12 ára sumarið 2023

17.apríl 2023

Ég er að lesa

Dýranámskeið fyrir 10 til 12 ára sumarið 2023

Námskeiðið stendur 10 til 12 ára krökkum (f. 2011 til 2013) til boða í sumar (2023). Á námskeiðinu vinna krakkarnir með dýr garðsins og námskeiðið því upplagt fyrir krakka sem áhuga hafa á dýrum almennt. Þau taka þátt í verkum og umhirðu dýra í útihúsunum. Auk þess eru framandi dýr heimsótt og farið í leiki.

Hvern dag gefst krökkunum tækifæri á að kíkja inn fyrir girðinguna hjá einhverri dýrategund og komast þá í mikið návígi við dýrin og getur það verið mjög spennandi. Námskeiðið er fimm virkir dagar (4 dagar þar sem almennir frídagar eru) og hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 12.00. Eftir að námskeiði lýkur geta þátttakendur dvalið í garðinum þar til honum er lokað kl. 18:00 (kl. 20:00 á miðvikudögum) og leikið sér í leiktækjunum eða skoðað dýrin. Það komast 12 krakkar að í hverri viku.

Skráning fer eingöngu fram í gegnum vefinn sumar.fristund.is en til að geta skráð þarf forráðafólk (þau sem skrá) að hafa rafræn skilríki og kennitölur þátttakenda og forráðafólks á hreinu.
Skráning hefst kl. 14:00 þriðjudaginn 25.apríl. Undanfarin ár hafa námskeiðin verið gríðar vinsæl og fyllst fljótt.

Námskeið        Tímabil
1. námskeið:    12. til 16. júní- – fullbókað og fullt á biðlista
2. námskeið:    19. til 23. júní – – fullbókað og fullt á biðlista 
3. námskeið:    26. til 30. júní – – fullbókað og fullt á biðlista 
4. námskeið:    3. til 7. júlí – – fullbókað og fullt á biðlista 
5. námskeið:    10. til 14. júlí – – fullbókað og fullt á biðlista 
6. námskeið:    17. til 21. júlí – – fullbókað og fullt á biðlista 
7. námskeið:    24. til 28. júlí – – fullbókað og fullt á biðlista 
8. námskeið:    31. júlí til 4.ágúst – – fullbókað og fullt á biðlista 
9. námskeið:    8. til 11. ágúst (4 dagar) – – fullbókað og fullt á biðlista 
10. námskeið:   14. til 18.ágúst – – fullbókað og fullt á biðlista 

Þátttökugjald er 22.135 krónur og veittur er 20% systkinaafsláttur. Þátttökugjald fyrir 4 daga námskeiðið er 17.730 krónur.
Innifalið í þátttökugjaldi er skemmtileg og lifandi fræðsla þar sem dýr garðsins koma mikið við sögu og dvöl í garðinum allan daginn alla vikuna.

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.