Memmm býður gestum Fjölskyldu- og húsdýragarðsins upp á smiðju frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga í júní 2024. Smiðjan verður staðsett við hlið rugguskipsins Elliða innst í Fjölskyldugarðinum.
Memmm leggur áherslu á gæða samverustundir fyrir fjölskyldur og á samspil barna og fullorðinna í leik og sköpun. Í smiðjunni verður boðið upp á alls konar náttúrulegan og endurnýttan efnivið og vönduð verkfæri. Hjá Memmm skapast fullkomið tækifæri til sköpunar á flestu því sem hugurinn reikar til.