Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verður opinn alla páskana frá kl. 10 til 17. Hringekjan verður opin frá skírdegi til annars í páskum frá kl. 12 til 16 og vinir okkar í Bæjarins Beztu bjóða gestum upp á páskaeggjaleit frá 1. til 6. apríl (frá miðvikudegi til mánudags). Í raun verða gullsteinar faldir í Fjölskyldugarðinum sem hægt verður að skipta út fyrir lítil páskaegg á starfsstöð Bæjarins Beztu í garðinum en alls verða 25 egg í boði hvern dag.
Dagskrá í kringum dýrin verður hefðbundin og nýklaktir hænuungar í smádýrahúsinu munu eflaust gleðja gesti. Vegna framkvæmda við nýtt fræðslurými í garðinum þurftu íbúar skriðdýrahússins að flytja tímabundið og því er skriðdýrahúsið lokað.


