Sjóferðum sundin er vorferð með leiðsögn og fræðslu um lífríki Faxaflóa og starfsemi Faxaflóarhafna. Siglingin er ætluð grunnskólabörnum í sveitarfélögum Faxaflóahafna, í Reykjavík, á Akranesi, í Hvalfjarðarsveit og Borgarnesi. Ferðin er samvinnuverkefni Faxaflóarhafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, í samstarfi við Special Tours. Verkefnið hefur verið í boði í þrjá áratugi og gefur nemendum tækifæri til að kynnast lífríki Faxaflóa og hafnarstarfsemi á lifandi og fræðandi hátt.
- Mæting er hjá bækistöðvum Special Tours, Geirsgötu 11.
- Dagskráin tekur alls 90 mínútur, þar af 50 mínútur út á sjó.
- Báturinn tekur alls 63 manns.
- Allar helstu upplýsingar má finna hér.
Bókaðu hér!
Vinsamlega athugið!
- Opið verður fyrir bókanir frá og með miðvikudeginum 4. mars kl. 12:00.
- Tímabil sjóferða er frá 7. apríl til 6. maí 2026 kl. 09:00-10:30 og 10:30-12:00.
Vinsamlega athugið!
- Bókað er í ferðir, eftir stærð hópa til að hámarka nýtni bátsferða, þess vegna áskilur Fjölskyldu – og húsdýragarðurinn sér rétt til að gera breytingar á bókun í samstarfi við skólana.
- Bátsferðir eru háðar veðri og sjólagi og geta því fallið niður eða breyst með stuttum fyrirvara. Mikilvægt er að hægt sé að ná í tengilið hópsins skömmu fyrir bókaðan ferðatíma.