Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verður opinn á Sumardaginn fyrsta frá kl. 10 til 17. Opið verður í hringekjuni Heiðrúnu og rugguskipinu Elliða frá kl. 12 til 16:30 og hefðbundin dagskrá verður í kringum dýrin.
Skátafélögin Garðbúar í Fossvogi, Landnemar í Hlíðunum og Skjöldungar í Laugardal bjóða gestum upp á skemmtilegt skátafjör í tilefni dagsins. Dagskrá skátanna hefst kl. 14. en þeir ætla að bjóða upp á klifurturn, hoppukastala, hindrunarbraut og skátaleiki.
Gleðilegt sumar öll sem eitt.