Námskeiðið stendur 10 til 12 ára krökkum (f. 2011 til 2013) til boða í sumar (2023). Á námskeiðinu vinna krakkarnir með dýr garðsins og námskeiðið því upplagt fyrir krakka sem áhuga hafa á dýrum almennt. Þau taka þátt í verkum og umhirðu dýra í útihúsunum. Auk þess eru framandi dýr heimsótt og farið í leiki.
Hvern dag gefst krökkunum tækifæri á að kíkja inn fyrir girðinguna hjá einhverri dýrategund og komast þá í mikið návígi við dýrin og getur það verið mjög spennandi. Námskeiðið er fimm virkir dagar (4 dagar þar sem almennir frídagar eru) og hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 12.00. Eftir að námskeiði lýkur geta þátttakendur dvalið í garðinum þar til honum er lokað kl. 18:00 (kl. 20:00 á miðvikudögum) og leikið sér í leiktækjunum eða skoðað dýrin. Það komast 12 krakkar að í hverri viku.
Skráning fer eingöngu fram í gegnum vefinn sumar.fristund.is en til að geta skráð þarf forráðafólk (þau sem skrá) að hafa rafræn skilríki og kennitölur þátttakenda og forráðafólks á hreinu.
Skráning hefst kl. 14:00 þriðjudaginn 25.apríl. Undanfarin ár hafa námskeiðin verið gríðar vinsæl og fyllst fljótt.
Námskeið Tímabil
1. námskeið: 12. til 16. júní- – fullbókað og fullt á biðlista
2. námskeið: 19. til 23. júní – – fullbókað og fullt á biðlista
3. námskeið: 26. til 30. júní – – fullbókað og fullt á biðlista
4. námskeið: 3. til 7. júlí – – fullbókað og fullt á biðlista
5. námskeið: 10. til 14. júlí – – fullbókað og fullt á biðlista
6. námskeið: 17. til 21. júlí – – fullbókað og fullt á biðlista
7. námskeið: 24. til 28. júlí – – fullbókað og fullt á biðlista
8. námskeið: 31. júlí til 4.ágúst – – fullbókað og fullt á biðlista
9. námskeið: 8. til 11. ágúst (4 dagar) – – fullbókað og fullt á biðlista
10. námskeið: 14. til 18.ágúst – – fullbókað og fullt á biðlista
Þátttökugjald er 22.135 krónur og veittur er 20% systkinaafsláttur. Þátttökugjald fyrir 4 daga námskeiðið er 17.730 krónur.
Innifalið í þátttökugjaldi er skemmtileg og lifandi fræðsla þar sem dýr garðsins koma mikið við sögu og dvöl í garðinum allan daginn alla vikuna.