Hrekkjavaka í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

13.október 2026

Ég er að lesa

Hrekkjavaka í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Hrekkjavökustemning í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum laugardagana 24. og 31. október. Garðurinn fyllist af draugum, skrímslum og spennandi uppákomum þar sem ómögulegt er að vita hvað leynist handan við næstu beygju. Hefðbundinn aðgangseyrir og eitthvað fyrir öll sem þora.

Viðburðurinn hentar allri fjölskyldunni, en sérstaklega börnum á aldrinum 6-12 ára (og hugrökkum yngri börnum) í fylgd fullorðinna.

 

Fyrsti vetrardagur

24. október kl. 16:00-19:00

Drauga- og skrímslaganga
Pilkington Props, Hringleikur og Dagrún Ósk

Þjóðfræðingurinn Dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir leiðir gesti um garðinn og segir sögur af draugum og skrímslum úr íslenskum þjóðsögum. Á leiðinni stíga persónur úr sögunum fram og mæta gestum á óvæntum stöðum.

Gangan hefst við inngang garðsins kl. 16:30 og 17:30.

Völundarhús

Í trjálundinum við hlið Ökuskólans bíður dularfullt útivölundarhús gesta. Leiklistarhópur skipaður 15-18 ára ungmennum úr nærumhverfi garðsins leiðir gesti í gegnum ævintýralega draugasögu þar sem ýmislegt getur komið á óvart.

Hleypt er inn í hópum á 10 mínútna fresti frá kl. 16:30 til 18:30.

Grímusmiðja ÞYKJÓ

Skapandi grímusmiðja hjá Þykjó þar sem gestir geta hannað og búið til sínar eigin hrekkjavökugrímur, tilvalið fyrir þau sem enn eiga eftir að finna sér gervi fyrir Hrekkjavökuna.

Opin leiktæki

Opið verður í fallturni, rugguskipinu, ökuskólanum og lest frá hádegi

Hrekkjavaka

31. október kl. 15:00-17:00

Hrekkjavökuandlitsmálun

Fáðu glæsilega andlitsmálun sem fullkomnar hrekkjavökubúninginn.

Búningadiskó

Mættu í búningi og taktu þátt í fjörinu þegar DJ Dóra Júlía heldur uppi stemningunni áður en haldið er af stað í „grikk eða gott“.

Völundarhús

Völundarhúsið opnar aftur dyr sínar fyrir gesti sem vilja láta á hugrekkið reyna. Sviðslistaupplifun í boði ungra leikara úr nærumhverfi garðsins. Athugið að hleypt er inn á 12 mínútna fresti og takmarkaður miðafjöldi. Miðar eru ókeypis en fást við inngang Völundarhússins sem er við hlið Ökuskólans í Fjölskyldugarðinum.

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.