Það myndaðist mögnuð stemmning í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum síðastliðinn laugardag, 24. október þegar Hrekkjavökunni var þjófstartað með fjölbreyttri og spennandi dagskrá. Um 2.600 gestir heimsóttu garðinn og tóku þátt í ævintýralegum upplifunum í húminu. Drauga- og skrímslaganga Dr. Dagrúnar Óskar var mjög vel sótt og ekki skemmdi fyrir þegar fullt tungl sveif upp á himininn og sæskrímsli, tröll og þekktir draugar úr þjóðsögum Íslendinga birtust ljóslifandi ásamt öðrum kynjaverum. Boðið var upp á útileikhúsupplifun í völundarhúsi, þar sem ungir leikarar úr nærumhverfi garðsins fluttu gestum staðbundna draugasögu og góð stemmning myndaðist í opinni grímusmiðju og við opinn eld.
Starfsfólk garðsins vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra sem mættu og gerðu daginn eftirminnilegan. Einnig færum við samstarfsaðilum, listafólki og öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd viðburðarins sérstakar þakkir fyrir þeirra framlag.
Gleðin heldur áfram næsta laugardag.
Hrekkjavakan rennur upp laugardaginn 31. október og þá verður henni einnig fagnað í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Frá kl. 15 til 17 verður boðið upp á andlitsmálun, búningadiskó með Dj Dóru Júlíu í veitingaskálanum og aftur gefst gestum kostur á að kíkja á ungu leikarana í útileikhúsinu Völundarhúsinu. Um er að ræða sviðslistaupplifun í boði ungra leikara úr nærumhverfi garðsins. Hleypt verður inn á 12 mínútna fresti og takmarkaður miðafjöldi. Miðar eru ókeypis en fást við inngang Völundarhússins sem er við hlið Ökuskólans í Fjölskyldugarðinum.
Hefðbundinn aðgangseyrir gildir í garðinn.
Undirbúningur er nú hafinn við að koma garðinum í jólabúning og við hvetjum áhugasöm að fylgjast vel með upplýsingum um jóladagskrána okkar sem birtist á allra næstu dögum.
Myndir frá sl. laugardegi sýna glöggt þá miklu gleði og góðu stemningu sem ríkti í garðinum, þar sem hundruð gestir nutu dagsins í félagsskap fjölskyldu, vina og allra þeirra furðuvera sem höfðu tekið sér bólfestu í garðinum af þessu tilefni. Myndirnar tók Hörður Sveinsson.
















