Samstarfssamningur milli Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og Memmm var undirritaður á dögunum. Memmm ætla að bjóða upp á smiðjur í garðinum fyrir fjölskyldur í júní og júlí sumarið 2023. Þær verða á miðvikudögum frá kl. 16 til 20 og á laugardögum og sunnudögum frá kl. 14 til 18 en fyrsta smiðjan verður miðvikudagskvöldið 7.júní.
Memmm leggur áherslu á gæða samverustundir fyrir fjölskyldur og á samspil barna og fullorðinna í leik og sköpum. Í smiðjunum verður boðið upp á alls konar náttúrulegan og endurnýttan efnivið og vönduð verkfæri. Hjá Memmm skapast fullkomið tækifæri til sköpunar á flestu því sem hugurinn reikar til.
Fylgjast má með ævintýrum Memmm á Facebook síðu þeirra.
