Sumaropnunartími frá 1.júní

31.maí 2023

Ég er að lesa

Sumaropnunartími frá 1.júní

Á morgun, 1.júní, breytist opnunartíminn í garðinum þegar skipt verður yfir í sumaropnunartíma. Þá verður opið alla daga frá klukkan 10 til 18 og aðeins lengur á miðvikudögum þegar opið verður til klukkan 20. Veitingasala Bæjarins Beztu Pylsa verður opin á opnunartíma garðsins og gestir hafa afnot af rafmagnsgrillunum í Fjölskyldugarðinum.
Leiktækin í Fjölskyldugarðinum vakna af vetrardvala og verða opin alla daga. Um síðustu áramót var gerð sú breyting á gjaldskrá Fjölskyldu- og húsdýragarðsins að sölu á skemmtimiðum og dagpössum í leiktækin var hætt. Aðgangseyrir gildir því einnig í leiktækin á opnunartíma þeirra.
Á seldum skemmtimiðum segir að þeir fáist ekki endurgreiddir en ákveðið hefur verið koma til móts við þau sem eiga eitthvað magn af miðum. Út árið 2023 gilda þrír gamlir skemmtimiðar sem 50% upp í óskertan aðgangseyri fyrir einn gest. Ekki verður hægt að greiða aðgangseyri að fullu með sex skemmtimiðum og ekki verður hægt nota afsláttinn með öðrum tilboðum.

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.