Kvöldopnanir verða í desember líkt og undanfarin ár en opið verður til klukkan 20 föstudaga til sunnudaga frá 1.desember til jóla. Verkefnið Jólaland í Laugardalnum var kosið í hverfakosningum í ár og því býður „Hverfið Mitt“ öllum að heimsækja jólaljósaskreyttan Fjölskyldu- og húsdýragarðinn frá kl. 17 – 20 föstudaga til sunnudaga frá 1. desember til jóla. Hefðbundinn opnunartími er annars alla daga frá kl. 10 til 17 og þá gildir hefðbundinn aðgangseyrir. Jólaljós hafa verið sett upp um allan garð og töluvert bæst við frá því í fyrra svo nú er ævintýri líkast að ganga um garðinn í rökkrinu, heimsækja dýrin og þau sem þora geta heimsótt sjálfan jólaköttinn í desember.
Á kvöldopnunum verður hægt að fara í hringekjuna, opið verður í veitingasölunni þar sem hægt verður að skreyta piparkökur og ratleikir í boði fyrir alla fjölskylduna. Ratleikirnir verða aðgengilegir í gegnum smáforritið Húsdýragarður – viskuslóð sem finna má i snjallverslunum snjalltækja. Hundaeigendum sem hafa skráð sína hunda hjá sínu sveitarfélagi er boðið að taka besta vininn með í kvöldheimsókn.
