Miðvikudagar eru hundadagar

18.júní 2024

Ég er að lesa

Miðvikudagar eru hundadagar

Hundaeigendur mega koma með hund sinn í heimsókn á miðvikudögum svo fremi að hann sé stilltur og skráður hjá sveitarfélagi. Hundarnir skulu bera merki sveitarfélags á hálsól, vera fullfrískir, fullbólusettir, ormahreinsaðir, í stuttum taumi og undir stjórn fullorðins aðila. Fylgdarfólk er beðið að koma hundum úr aðstæðum sem eru streituvaldandi fyrir fólk, hunda eða önnur dýr. Dýrin í garðinum eru misspennt fyrir hundum og því eru gestkomandi hundar ekki leyfðir innandyra og ekki meðfram refagirðingunni.
Það er lítið mál að skrá hundana sína í Reykjavík þar sem öll skráning er rafræn á www.island.is og hvetur Dýraþjónusta Reykjavíkur öll sem eiga það eftir að drífa í því. Ef hundur er skráður í Reykjavík en merkið til að setja á hálsólina er týnt þá er lítið mál að gera nýtt. Hundaeigendur geta í þeim tilfellum sent póst á dyr@reykjavik.is.

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.