Undanfarnar vikur hefur starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins sett upp jólaljós um allan garð svo það er ævintýri líkast að ganga um garðinn í rökkrinu, heimsækja dýrin og þau sem þora geta heimsótt sjálfan jólaköttinn.
Formleg opnun Jóladalsins í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum verður föstudaginn 29. nóvember en ókeypis verður inn frá kl. 17:00. Einar Þorsteinsson borgarstjóri mun opna Jóladalinn við tjörnina í garðinum kl. 17:30 og flytja jólakveðju til borgarbúa og -gesta. Listskautahópur frá Skautafélagi Reykjavíkur mun sýna listir sínar, Lúðrasveit Verkalýðsins skemmtir og Jóhanna Guðrún mun syngja nokkur lög. Lalli töframaður mun halda utan um dagskrána. Á leið sinni frá innganginum að tjörninni geta gestir átt von á að rekast á kynjaverur úr hugarheimi Brian Pilkington og kvartettinn Barbara.
Kvöldopnanir verða alla aðventuna líkt og undanfarin ár en opið verður til klukkan 20 föstudaga til sunnudaga frá 29.nóvember til jóla. Verkefnið Jólaland í Laugardalnum var kosið í hverfakosningum í fyrra og því býður „Hverfið Mitt“ öllum að heimsækja jólaljósaskreyttan Fjölskyldu- og húsdýragarðinn frá kl. 17 – 20 föstudaga til sunnudaga á aðventunni. Hefðbundinn opnunartími er annars alla daga frá kl. 10 til 17 og þá gildir hefðbundinn aðgangseyrir.
Á kvöldopnunum verður hægt að heimsækja dýrin, fara í hringekjuna, tónlist mun óma, matarvagnar verða á staðnum fyrir svanga gesti og drykkir og notalegheit í veitingaskálanum. Ratleikur fyrir alla fjölskylduna verður aðgengilegur í gegnum smáforritið Húsdýragarður – viskuslóð sem finna má i snjallverslunum snjalltækja. Hundaeigendum sem hafa skráð sína hunda hjá sínu sveitarfélagi er boðið að taka besta vininn með í kvöldheimsókn.