Námskeiðið stendur 10 til 12 ára krökkum (f. 2014 til 2016) til boða í sumar (2026). Á námskeiðinu vinna þátttakendur með dýr garðsins og námskeiðið því upplagt fyrir krakka sem áhuga hafa á dýrum. Þau taka þátt í verkum og umhirðu dýra í útihúsunum. Auk þess eru framandi dýr heimsótt og farið í leiki.
Hvern dag gefst krökkunum tækifæri á að kíkja inn fyrir girðinguna hjá einhverri dýrategund og komast þá í mikið návígi við dýrin og getur það verið mjög spennandi. Námskeiðið er fimm virkir dagar (4 dagar þar sem almennir frídagar eru) og hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 12.00. Eftir að námskeiði lýkur geta þátttakendur dvalið í garðinum þar til honum er lokað kl. 18:00 og leikið sér í leiktækjunum eða skoðað dýrin. Það komast 12 krakkar að í hverri viku.
Skráning fer fram á Abler og hefst kl. 14:00 þriðjudaginn 28.apríl, börn í Reykjavík eru í forgangi á námskeiðið. Athugið að námskeiðið birtist ekki í verslun Abler fyrr en opnað verður fyrir skráningu.
Námskeið Tímabil
- námskeið: 15. til 19. júní (4 dagar)
2.námskeið: 22. til 26. júní
3.námskeið: 29. júní til 3.júlí
4.námskeið: 6. til 10. júlí
5.námskeið: 13. til 17. júlí
6.námskeið: 20. til 24.júlí
7.námskeið: 27. til 31. júlí
8.námskeið: 4. til 7.ágúst (4 dagar)
9.námskeið: 10. til 14. ágúst
10.námskeið: 17. til 21.ágúst
SKRÁNING
Þátttökugjald er 25.400 krónur. Þátttökugjald fyrir 4 daga námskeið er 20.400 krónur.
Innifalið í þátttökugjaldi er skemmtileg og lifandi fræðsla þar sem dýr garðsins koma mikið við sögu og dvöl í garðinum allan daginn alla vikuna.


