Heimsókn í lundabyggð

14.september 2026

Ég er að lesa

Heimsókn í lundabyggð

Gestum Fjölskyldu- og húsdýragarðsins býðst að heimsækja lundabyggðina í Drangey með aðstoð sýndarveruleikatækni á Degi íslenskrar náttúru, 16. september.
Myndbandið sem sýnt er í sýndarveruleikagleraugunum var tekið upp af Árna Rúnari Hrólfssyni á árunum 2024 og 2025 í Drangey, þeim einstaka og stórbrotna stað. Náttúrufegurðin, útsýnið og umhverfið gera upplifunina einstaka og eftirminnilega.
Myndatökurnar reyndust Árna Rúnari þó áskorun. Þótt lundinn við bryggjuna sé nokkuð vanur nærveru fólks og því auðveldari viðfangs en margir aðrir fuglar sem þarf að komast ótrúlega nálægt til að ná góðu myndefni með þessari tækni.
Árni Rúnar segist hvergi nærri hættur að mynda þennan stórbrotna fugl.
Kíkið við í veitingaskálanum á Degi íslenskrar náttúru en einnig verður hægt að sjá myndbandið fram eftir hausti á opnunartíma garðsins.
Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.