Vináttudagur Barnaheilla

24.maí 2026

Ég er að lesa

Vináttudagur Barnaheilla

Þriðjudaginn 26. maí fyrir hádegi verður haldinn í fyrsta sinn Vináttudagur Barnaheilla. Um 700 börn úr 31 leikskóla á höfuðborgarsvæðinu, og þar af 24 leikskólum í Reykjavík, munu koma í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn til að fagna vináttunni.  Allir skólarnir eiga það sameiginlegt að vera Vináttuskólar, og vinna með efni Barnaheilla  gegn einelti og að því að efla félagsleg tengsl og vináttu.

Dagskrá verður á sviðinu frá 11:00 til 11:30 þar sem bangsinn Blær verður í aðalhlutverki en hann er táknmynd verkefnisins. Nemendur í vináttuleikskólunum verða einnig í stóru hlutverki þar sem þau verða hvött til að taka undir í dans og söng með Blæ. Dagskránni lýkur svo með því að Páll Óskar stígur á svið og tekur lagið Eitt af blómunum með krökkunum.

 

 

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.