Menningargarðurinn og lúðraómur

28.maí 2026

Ég er að lesa

Menningargarðurinn og lúðraómur

Um helgina (30. og 31. maí) verður nóg um að vera í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem Menningarsendiherrar bjóða í Menningargarðinn á laugardaginn og nemendur í Skólahljómsveitum Reykjavíkur halda uppskeruhátíð sína á sunnudaginn. Opið verður báða dagana frá kl. 10 til 17, en breytt verður í sumaropnunartíma mánudaginn 1. júní og þá verður opið alla daga frá kl. 10 til 18 og leiktæki verða opin alla daga vikunnar frá 30.maí fram að grunnskólabyrjun í lok ágúst.
Í Menningargarðinum verður gestum boðið að fagna fjölbreytileika og kynna sér mat og menningu víða að úr heiminum í fallegu umhverfi og upplifa fjölskylduvæna stemningu. Dagskráin stendur frá kl. 12 til 16 laugardaginn 30. maí og ókeypis verður inn í boði Menningarsendiherranna.
Sunnudaginn 31. maí halda skólahljómsveitir Reykjavíkur uppskeruhátíð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Lúðraómur mun fylla Laugardalinn en í sveitunum eru um 600 ungir hljóðfæraleikarar.
Hljómsveitirnar sem munu leika fyrir gesti í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum eru Skólahljómsveit Árbæjar- og Breiðholts, Skólahljómsveit Grafarvogs, Skólahljómsveit Austurbæjar og Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar.
Allar þessar hljómsveitir hafa á að skipa þremur aldursskiptum hljómsveitum A, B og C. Það verða því 12 sveitir sem munu spila á tveimur sviðum og marsera um garðinn frá kl.13.00 – 17.00.
Leiktæki verða opin og dýrin að sjálfsögðu heima við og hefðbundin dagskrá í kringum þau.

 

 

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.