Opnunartíminn breyttist 1.júní og nú er opið alla daga frá kl. 10 til 18 og leiktækin opin alla daga. Starfsmannahópurinn stækkaði einnig sama dag þegar úrvals sumarstarfsfólk tók til starfa og þar eru í bland reynsluboltar og nýliðar.
Vakin er athygli á því að efst á síðunni er komið viðburðardagatal undir flipanum, dagskrá og viðburðir. Þar stendur til að setja inn þá viðburði sem framundan eru. Þar ber helst að nefna að Tívolí Tónleikaröðin fer aftur af stað í júlí og Brúðubíllinn verður alla föstudaga frá 19. júní til loka júlí.

