- This event has passed.
Taktu besta vininn með í heimsókn
júlí 8

Hundaeigendur hafa undanfarna mánuði getað komið með stillta og skráða hunda sína í heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á miðvikudögum, og hefur það almennt gengið vel. Nú hefur verið ákveðið að gefa fleirum tækifæri til að njóta þessara heimsókna með því að bæta við laugardögum í júlí.
Hundaeigendur eru þó vinsamlega beðnir að hafa í huga að aðeins er heimilt að koma með hunda sem eru heilsuhraustir, stilltir og skráðir. Það felur í sér að hundar skulu vera bólusettir, ormahreinsaðir og almennt við góða heilsu. Einnig er mikilvægt að hundurinn sé rólegur og sýni góða hegðun – hann má hvorki valda ónæði fyrir dýr garðsins né gesti og þarf að vera í stuttum taum allan tímann. Þess utan þarf hundurinn að vera skráður hjá sveitarfélagi og bera skráningarmerki um hálsinn því til staðfestingar.
Yfir sumartímann eru flest dýr garðsins úti við á opnunartíma. Gestkomandi hundar eru ekki leyfðir inni í útihúsunum og sérstaklega viljum við benda á að refirnir bregðast illa við nærveru hunda. Því er ekki leyfilegt að vera með hunda nálægt þeim. Þá mega þeir ekki vera inni í veitingasölunni.
Það er einlæg von starfsfólks að hundaeigendur kunni að meta þetta framtak og sýni þessum takmörkunum skilning. Markmiðið er fyrst og fremst að tryggja velferð dýranna og að öll geti notið heimsóknarinnar á öruggan og ánægjulegan hátt.