Langar ykkur að færa kennsluna nær náttúrunni og dýrunum? Fræðsludeild Fjölskyldu- og húsdýragarðsins býður upp á fjölmarga spennandi kosti fyrir leik- og grunnskólahópa á komandi skólaári. Skoðið úrvalið undir „Skólahópar“ og við vekjum athygli á að opnað verður fyrir bókanir mánudaginn 31. ágúst kl. 12:00 undir flipanum „Bókanir fyrir skólahópa“.
Endilega hafið samband á namskeid@husdyragardur.is fyrir frekari upplýsingar.


