- This event has passed.
Dýraþjónustudagurinn

Starfsfólk Dýraþjónustu Reykjavíkur kynnir starfsemi sína í veitingaskála Fjölskyldu- og húsdýragarðsins laugardaginn 7. nóvember kl. 12:00-17:00. Fulltrúar frá Kattholti og Dýrahjálp verða einnig á staðnum og kynna starfsemi sína ásamt samstarfi sínu við Dýraþjónustu Reykjavíkur. Gestum gefst kostur á að taka þátt í lukkuhjóli fyrir hundaeigendur og fá faglega ljósmynd af hundinum sínum. Skráðir og stilltir hundar eru velkomnir í garðinn í fylgd eigenda sinna. Hingað til hefur hundaeigendum skráðra og stilltra hunda verið heimilt að heimsækja Fjölskyldu- og húsdýragarðinn með hunda sína á miðvikudögum. Frá og með 7. nóvember verða laugardagar einnig hluti af þeim heimsóknardögum. Verið velkomin í fræðandi og skemmtilegan dag í garðinum.