Leikhópurinn Lotta – Litaland

Litaland segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum – eða Gulverjum, Rauðingjum og Bláungum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil, enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig.
Fljótlega dregur þó til tíðinda. Bláungar neyðast til að leita skjóls hjá Gulverjum í Gulheimum, þar sem heimur þeirra bláu er að hverfa og þeir standa eftir án samastaðar. Sú viðkvæma staða leiðir til spennandi og ófyrirsjáanlegrar framvindu.
Í Rauðheimum virðist allt á yfirborðinu vera með felldu. Þar undirbúa Rauðingjar komu nýs litar sem væntanlegur er í hópinn. Rjóð, móðir hans, er þó treg til að segja frá því hver faðirinn er… Hver skyldi vera ástæðan fyrir því?
Leikstjórn: Sigsteinn Sigurbergsson & Þórunn Lárusdóttir
Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson & Sumarliði V Snæland Ingimarsson
Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen
Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Helgi Reynir Jónsson
Höfundur lagatexta: Sævar Sigurgeirsson & Baldur Ragnarsson
Hljóðblöndun: Þórður Gunnar Þorvaldsson
Búningahönnun: Aldís Gyða Davíðsdóttir, Ídris R. Berman, Rósa Ásgeirsdóttir
Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson
Leikmunir: Leikhópurinn