- This event has passed.
Vináttudagur Barnaheilla
maí 26 @ 10:00 f.h. - 12:00 e.h.

Þriðjudaginn 26. maí verður haldinn í fyrsta sinn Vináttudagur Barnaheilla. Um 700 börn úr 31 leikskóla á höfuðborgarsvæðinu, og þar af 24 leikskólum í Reykjavík, munu koma í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn til að fagna vináttunni. Allir skólarnir eiga það sameiginlegt að vera Vináttuskólar, og vinna með efni Barnaheilla gegn einelti og að því að efla félagsleg tengsl og vináttu. Rúsínan í pylsuendanum er svo Páll Óskar sem ætlar að flytja lagið Eitt af blómunum með krökkunum á sviðinu.