Talið er að sum refagreni hafi verið í notkun með hléum í mörg hundruð eða jafnvel þúsundir ára.

Heimskautarefur

Heimskautarefurinn er eina spendýrið sem kom ekki með fólki til landsins. Talið er að fyrstu dýrin hafi komið með hingað með hafís í lok seinustu ísaldar, fyrir um 10.000 árum. Tvö megin litaafbrigði af heimskautaref eru í íslenska stofninum, hvítur og mórauður (sem er algengari). Refir eru einkvænisdýr og lifa í pörum og verja afmarkað heimasvæði, sem kallast óðal fyrir öðrum refum. Þeir leita sér að æti á þessu svæði og merkja það með þvagi. Refaparið hjálpast að við að koma yrðlingum á legg. Einnig kemur fyrir að ein eða fleiri ársgamlar dætur parsins aðstoði þau við að ala upp yngri systkini. Það má því segja að refurinn sé fremur fjölskyldumiðaður að eðlisfari.

Fjölskyldugerð

Steggur, tófa og yrðlingur

Fengitími

Snemma á vorin

Fjöldi afkvæma

6 yrðlingar að meðaltali

Komutími til Íslands

Líklegast fyrir um 10.000 árum

Þyngd

3,2–5,8 kg, mismunandi eftir kyni og árstíma

Meðgöngutími

52-53 dagar

Nytjar

Feldur

Sjá fleiri dýr
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.