Fróðleiksstundir í stað leiðsagna

9.maí 2025

Ég er að lesa

Fróðleiksstundir í stað leiðsagna

Líkt og undanfarin ár ætlar starfsfólk garðsins að gera hlé á námskeiðum og leiðsögnum frá 9.maí 2025 og út grunnskólaárið. Þess í stað verður boðið upp á tvær til þrjár opnar fróðleiksstundir kl. 10:15 og 11:15 hvern virka dag á tímabilinu. Á fróðleiksstundum mæta áhugasöm og fræðast um dýrin í garðinum en hvaða dýr eru tekin fyrir ræðst af veðri, stemningu og fjölda gesta hverju sinni.

Skólahópar mega láta vita af komu sinni á netfangið namskeid@husdyragardur.is en það er ekki nauðsynlegt. Opnunartími er frá kl. 10 til 17.

Aðsókn í garðinn að vori er mikil og með þessu fyrirkomulagi nær starfsfólk að þjónusta fjöldann betur en annars.

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.