Hundadagar í júlí

29.júní 2026

Ég er að lesa

Hundadagar í júlí

Hundaeigendur hafa undanfarna mánuði getað komið með stillta og skráða hunda sína í heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á miðvikudögum, og hefur það almennt gengið vel. Nú hefur verið ákveðið að gefa fleirum tækifæri til að njóta þessara heimsókna með því að bæta við laugardögum í júlí.

🎡 Miðvikudaginn 1. júlí kl. 14–16 verður extra fjör:
Hundar (með aðstoð eigenda) geta snúið Lukkuhjóli Dýraþjónustu Reykjavíkur og reynt að vinna glæsilega vinninga!
🐶 Á staðnum verða einnig:
• Fulltrúar frá Dýrahjálp sem kynna starf sitt
• Starfsfólk Dýraþjónustu Reykjavíkur sem segir frá sinni þjónustu


Hundaeigendur eru þó vinsamlega beðnir að hafa í huga að aðeins er heimilt að koma með hunda sem eru heilsuhraustir, stilltir og skráðir. Það felur í sér að hundar skulu vera bólusettir, ormahreinsaðir og almennt við góða heilsu. Einnig er mikilvægt að hundurinn sé rólegur og sýni góða hegðun – hann má hvorki valda ónæði fyrir dýr garðsins né gesti og þarf að vera í stuttum taum allan tímann. Þess utan þarf hundurinn að vera skráður hjá sveitarfélagi og bera skráningarmerki um hálsinn því til staðfestingar.

Yfir sumartímann eru flest dýr garðsins úti við á opnunartíma. Gestkomandi hundar eru ekki leyfðir inni í útihúsunum og sérstaklega viljum við benda á að refirnir bregðast illa við nærveru hunda. Því er ekki leyfilegt að vera með hunda nálægt þeim. Þá mega þeir ekki vera inni í veitingasölunni.

Það er einlæg von starfsfólks að hundaeigendur kunni að meta þetta framtak og sýni þessum takmörkunum skilning. Markmiðið er fyrst og fremst að tryggja velferð dýranna og að öll geti notið heimsóknarinnar á öruggan og ánægjulegan hátt.

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.