Frá og með 31. ágúst verður Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn opinn alla daga frá kl. 10:00 til 17:00.
Leiktækin verða opin um helgar fram eftir hausti, eftir því sem veður og mannafli leyfa, en lokuð á virkum dögum. Leiksvæði garðsins verður hins vegar áfram opið allan opnunartímann.
Dýrin eru að sjálfsögðu á sínum stað og taka vel á móti gestum, svo það er alltaf nóg að sjá og upplifa í garðinum. Við hlökkum til að taka á móti ykkur!


