Góð aðsókn í sumar og fjölbreytt dagskrá framundan

3.september 2026

Ég er að lesa

Góð aðsókn í sumar og fjölbreytt dagskrá framundan

Aðsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn var mjög góð í sumar og bendir allt til þess að gestir hafi kunnað vel að meta bæði fjölbreytta dagskrá og lækkað verð á árskortum. Í júní, júlí og ágúst heimsóttu tæplega 99 þúsund gestir garðinn, samanborið við tæplega 79 þúsund gesti á sama tímabili í fyrra. Þá hefur sala árskorta aukist verulega í kjölfar verðlækkunar á kortunum og hafa viðtökur gesta verið afar jákvæðar.

Líf og fjör einkenndu sumarið í garðinum. Tívolí Tónleikar voru haldnir annað árið í röð og skapaðist frábær stemning þegar þaulreynt tónlistarfólk og efnileg ungmenni úr röðum Skólahljómsveita Reykjavíkur stigu á svið. Brúðubíllinn heimsótti garðinn nokkrum sinnum yfir sumarið og vakti mikla lukku meðal gesta á öllum aldri. Á frídegi verslunarmanna var gestum boðið á skemmtilega sýningu með Leikhópnum Lottu og heimsókn félaga úr Fornbílaklúbbi Íslands vakti einnig mikla athygli.

Í sumar bauð Vinnuskóli Reykjavíkur í fyrsta sinn ungu tónlistar- og leiklistarfólki að vinna við list sína. Þátttakendur úr Skólahljómsveitum Reykjavíkur og ungir leikarar æfðu og komu fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sem og á öðrum vettvangi. Að mati starfsfólks garðsins heppnaðist verkefnið einstaklega vel og framkoma unga fólksins var til fyrirmyndar. Hæfileikarnir létu ekki á sér standa og vonir eru bundnar við að verkefnið fái framhald á næstu árum.

Þótt annasömu og viðburðaríku sumri sé lokið er ýmislegt framundan í garðinum. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er vinsæll útivistarstaður allt árið um kring og á degi íslenskrar náttúru, 16. september, verður gestum boðið í spennandi sýndarveruleikaferðalag um lundabjarg.

Sunnudaginn 27. september verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í tilefni af Íþróttaviku Evrópu. Gestir verða hvattir til hreyfingar með ýmis konar afþreyingu, meðal annars jógatímum og hobbíhestabraut fyrir áhugasama. Hobbíhestaiðkun á rætur að rekja til Finnlands og hefur notið vaxandi vinsælda víða um heim á undanförnum árum. Í greininni reynir á bæði þol, jafnvægi og samhæfingu þegar þátttakendur hlaupa og stökkva yfir hindranir með prikhesta sem líkja eftir hefðbundnum hindrunarstökkum.

Jafnframt er undirbúningur þegar hafinn fyrir vinsæla viðburði haustsins og vetrarins. Hrekkjavökugleði og jóladagskrá Fjölskyldu- og húsdýragarðsins eru í undirbúningi og geta gestir því hlakkað til áframhaldandi lífs og fjörs í garðinum á komandi mánuðum.

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er opinn alla daga frá kl. 10 til 17 og opið verður í völdum leiktækjum um helgar fram eftir hausti en þau lokuð virka daga. Dýrin taka á móti gestum allan opnunartímann og leiksvæði Fjölskyldugarðsins er opið.

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.