Hrekkjavökudagskrá 31. október

30.október 2026

Ég er að lesa

Hrekkjavökudagskrá 31. október

Hrekkjavakan rennur upp laugardaginn 31. október og þá verður henni fagnað í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.  Frá kl. 15 til 17 verður boðið upp á andlitsmálun, búningadiskó með Dj Dóru Júlíu í veitingaskálanum og draugar og skrímsli frá Pilkington Props og Hringleik verða á vappi. Þá gefst gestum kostur á að kíkja á ungu leikara í útileikhúsinu Völundarhúsinu.  Um er að ræða sviðslistaupplifun í boði ungra leikara úr nærumhverfi garðsins. Hleypt verður inn á 12 mínútna fresti og takmarkaður miðafjöldi. Miðar eru ókeypis en fást við inngang Völundarhússins sem er við hlið Ökuskólans í Fjölskyldugarðinum.

Hefðbundinn aðgangseyrir gildir í garðinn og dagskrá í kringum dýrin verður með hefðbundnum hætti. Opið verður í fallturni, rugguskipinu, ökuskóla og lest.

Undirbúningur er nú hafinn við að koma garðinum í jólabúning og við hvetjum áhugasöm að fylgjast vel með upplýsingum um jóladagskrána okkar sem birtist á allra næstu dögum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.