Aðsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn hefur verið einstaklega góð undanfarið og aldrei hafa fleiri gestir heimsótt garðinn í októbermánuði en í ár. Alls komu 9.024 gestir í garðinn í október og hefur fyrra met því verið slegið. Það var sett árið 2010 þegar 8.697 gestir lögðu leið sína í garðinn.
Til samanburðar hefur meðalaðsókn í október frá opnun garðsins árið 1990 verið 5.855 gestir.
Vinsæl Hrekkjavökudagskrá garðsins átti stóran þátt í góðri aðsókn og er stefnt að því að bjóða upp á sambærilega dagskrá að nýju á næsta ári.
Nú stendur yfir undirbúningur jóladagskrár af fullum krafti. Fram undan er þó Dýraþjónustudagurinn laugardaginn 7. nóvember, þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast starfsemi Dýraþjónustu Reykjavíkur.
Frá og með þeim degi verða stilltir og skráðir hundar einnig velkomnir í garðinn á laugardögum. Hundar hafa verið velkomnir í garðinn á miðvikudögum frá árinu 2022 og er þessi breyting liður í að auka enn frekar aðgengi hundaeigenda að garðinum.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er opinn alla daga frá kl. 10:00 til 17:00.


