Bylgjulestin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum 13. júní.

11.júní 2026

Ég er að lesa

Bylgjulestin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum 13. júní.

Bylgjulestin er farin af stað og meðal áfangastaða í sumar er Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn laugardaginn 13. júní og að því tilefni verður ókeypis inn í garðinn þann dag fyrir öll !
Lestarstjórarnir Svali og Svansí sjá til þess að allir farþegar skemmti sér konunglega. Skúbb ísgerð mætir með ísvagn og Lukkuhjól þar sem hægt er að vinna skemmtilega vinninga frá N1, 7up Pink, Bylgjunni, SÝN+ og Kitkat.
Það er alltaf líf og fjör Í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum og öll ættu að finna þar sitthvað við sitt hæfi. Leiktæki verða opin, dýrin verða heima við og auðvitað verður opið í veitingasölu Bæjarins Beztu. 
Ekki missa af Bylgjulestinni í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum frá kl 12-16 á laugardaginn og í beinni útsendingu á Bylgjunni.

 

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.