Alþjóðlegur dagur íslenska hestsins er 1. maí. Af því tilefni verður hestatengd dagskrá í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Gestum býðst að fara í sýndarveruleikareiðtúr, fylgjast með hestaþjálfunarstund og auðvitað kynnast hestum garðsins sem eru hesturinn Völur og hrysssan Fjöður. Að auki verður opið í hringekju, rugguskipinu Elliða og lestinni frá kl. 12:00. Veitingasala Bæjarins Beztu verður opin og ungviðið gleður í fjárhúsinu.
Hestatengd dagskrá
12:30 til 14:00 Gestum gefst kostur á að skella sér í sýndarveruleikareiðtúr í hesthúsinu.
14:00 Hestaþjálfunarstund í hestagerðinu.
Önnur dýratengd dagskrá
10:30 Hreindýrum gefið
11:00 Selum gefið
11:30 Refum gefið
15:30 Hreindýrum gefið
15:45 Dýrum í smádýrahúsi gefið
16:00 Selum gefið
16:30 Nautgripum og svínum gefið


