Starfsfólk Dýraþjónustu Reykjavíkur kynnir starfsemi sína í veitingaskála Fjölskyldu- og húsdýragarðsins laugardaginn 7. nóvember frá kl. 12:00 til 17:00.
Fulltrúar frá Kattholti og Dýrahjálp verða einnig á staðnum og kynna starfsemi sína ásamt samstarfi sínu við Dýraþjónustu Reykjavíkur.
Gestum gefst kostur á að taka þátt í lukkuhjóli fyrir hundaeigendur og fá faglega ljósmynd af hundinum sínum. Greiðsla fyrir lukkuhjólið og myndatökuna rennur óskipt í fálkaverkefni sem kynnt verður á staðnum.
Skráðir og stilltir hundar eru velkomnir í garðinn í fylgd eigenda sinna. Hingað til hefur hundaeigendum skráðra og stilltra hunda verið heimilt að heimsækja Fjölskyldu- og húsdýragarðinn með hunda sína á miðvikudögum. Frá og með 7. nóvember verða laugardagar einnig hluti af þeim heimsóknardögum.
Verið velkomin í fræðandi og skemmtilegan dag í garðinum.


