Hvítasunnuhelgin 23. til 25. maí – opið frá 10 til 17.
Laugardagurinn 23. maí
Brúðubíllinn sýnir Afmælisveisluna kl. 14:00 við sviðið við hringekjuna – frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Opið í hringekju, Mjölni (sleggjunni) og fallturni, því miður náðist ekki að manna fleiri tæki vegna útskrifta duglega tækjastarfsfólksins okkar.
Sunnudagurinn 24. maí og mánudagurinn 25. maí.
Opið í öllum tækjum nema bátum.
Dýrin verða auðvitað á sínum stað og við hvetjum öll til að kíkja í fjárhúsið þar sem ofurfalleg lömb og kiðlingar taka vel á móti gestum.
Veitingasala Bæjarins Beztu verður opin.
Sjáumst í góðu stuði!


