Litaland með Leikhópnum Lottu

24.júlí 2026

Ég er að lesa

Litaland með Leikhópnum Lottu

Gestum Fjölskyldu- og húsdýragarðsins er boðið á sýninguna Litaland með Leikhópnum Lottu á frídegi verslunarmanna (mánudaginn 3. ágúst) kl. 14:00. Gestir eru hvattir til að mæta tímalega þar sem gangan á sýningarstaðinn getur tekið tíma frá miðasölunni enda margt að sjá og gera á leiðinni.
Litaland segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum – eða Gulverjum, Rauðingjum og Bláungum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil, enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig.
Fljótlega dregur þó til tíðinda. Bláungar neyðast til að leita skjóls hjá Gulverjum í Gulheimum, þar sem heimur þeirra bláu er að hverfa og þeir standa eftir án samastaðar. Sú viðkvæma staða leiðir til spennandi og ófyrirsjáanlegrar framvindu.
Í Rauðheimum virðist allt á yfirborðinu vera með felldu. Þar undirbúa Rauðingjar komu nýs litar sem væntanlegur er í hópinn. Rjóð, móðir hans, er þó treg til að segja frá því hver faðirinn er… Hver skyldi vera ástæðan fyrir því?
Leikstjórn: Sigsteinn Sigurbergsson & Þórunn Lárusdóttir
Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson & Sumarliði V Snæland Ingimarsson
Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen
Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Helgi Reynir Jónsson
Höfundur lagatexta: Sævar Sigurgeirsson & Baldur Ragnarsson
Hljóðblöndun: Þórður Gunnar Þorvaldsson Búningahönnun: Aldís Gyða Davíðsdóttir, Ídris R. Berman, Rósa Ásgeirsdóttir
Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson
Leikmunir: Leikhópurinn

 

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.