Á Sumardaginn fyrsta standa skátafélögin Skjöldungar, Garðbúar og Landnemar fyrir fjölskylduvænni dagskrá í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá klukkan 13:00- 16:00.
Gestum, sérstaklega börnum, býðst að taka þátt í fjölbreyttri afþreyingu. Hoppukastalar, klifurveggur og ýmis leiktæki. Einnig verður hægt að rista sykurpúða yfir varðeldi og njóta útiveru í skemmtilegu og öruggu umhverfi. Skátarnir verða með sölutjald þar sem hægt verður að kaupa ýmiskonar góðgæti.
Hringekjan og rugguskipið Elliði verða opin og kiðlingar taka vel á móti gestum í fjárhúsunum. Opið verður í kaffihúsinu hjá Bæjarins Beztu.
Markmið viðburðarins er að bjóða fjölskyldum upp á notalega samveru og skapa lifandi og skemmtilega stemningu í tilefni dagsins.
Hefðbundinn aðgangseyrir gildir.
Öll eru hjartanlega velkomin.
Gleðilegt sumar
Gleðilegt sumar
.


