Skoppa og Skrítla ætla að halda stórkostlega sumarhátíð fyrir alla fjölskylduna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum 14. maí 
Hátíð á sviði hefst kl 13 og stendur til rúmlega 15 en garðurinn verður opinn frá kl. 10 til 17 og hægt að skemmta sér í leiktækjunum og heimsækja dýrin. Gott að mæta snemma og gera sér glaðan dag í garðinum okkar allra. Opið verður í fallturni, rugguskipinu Elliða, Mjölni (sleggjunni), hringekju og lest.
Það verður sannkölluð gleðistemning þar sem kærir vinir Skoppu og Skrítlu munu stíga á svið. Má þar nefna Bakara Svakara og Zúmma, Pál Óskar, Jóhönnu Guðrúnu, leikhópinn úr tónleikasýningunni ásamt mörgum öðrum frábærum stjörnum. Gestir fá einnig tækifæri til að smakka glænýjan Skoppu & Skrítlu ís frá Valdís og taka þátt í fjölbreyttu fjöri.
Á sama tíma fagna þær stöllu rþví að miðasala á tónleikasýningu Skoppu og Skrítlu verður opnuð. Sýningin mun vera í Hörpu og Hofi þetta árið svo þetta er kjörið tækifæri til að tryggja sér sæti og vera hluti af skemmtuninni framundan.
Tónlist, dans, söngvar, gleði og sumarstemning sem þú vilt ekki missa af! 


