Tívolí Tónleikar 2026

2.júlí 2026

Ég er að lesa

Tívolí Tónleikar 2026

Tívolí Tónleikaröðin snýr aftur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í sumar en haldnir verða fernir tónleikar fimmtudagana 9. júlí, 16. júlí, 23. júlí og 6. ágúst og þeir hefjast kl. 16:00.

Dagskráin verður sem hér segir:

Fimmtudagur 9. júlí: Emmsjé Gauti, Maron Birnir og Margrét Erla Maack

Fimmtudagur 16. júlí: Páll Óskar, Væb og Dj Dóra Júlía

Fimmtudagur 23. júlí: GDRN, Sprite Zero Klan og Dj Dóra Júlía

Fimmtudagur 6. ágúst: Bríet, Unnsteinn og Dj Dóra Júlía

Gestir eru hvattir til að mæta snemma og njóta alls þess sem garðurinn hefur upp á að bjóða fyrir tónleika, skemmta sér í leiktækjunum, heimsækja dýrin og njóta veitinga hjá Bæjarins Beztu.

Ekki þarf að greiða sérstaklega fyrir að koma á tónleikana þar sem hefðbundinn aðgangseyrir í garðinn gildir og árskort að sjálfsögðu líka.

Hlökkum til að hafa gaman með ykkur í sumar.

 

Share this post
Facebook
Twitter
Tengt efni
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.